Flugdrekar Rökkurró

Tekst piosenki

  • Tekst piosenki Redakcja
Grasið er grænna hjá þér
og fegurra.
Það dafnar allan ársins hring.

Í garðinum blómstrar allt endalaust.
Allir lífsins litir,
hér á sama stað.

Ég hleyp og hrasa um þína fætur.
Mér blæðir eftir fallið
en stend þó aftur upp
og finn að allt er breytt.

Þín tilvera tendrar mín vit
og glæðir mig
björtum ljóma.
Mér finnst ég betri nú.

Ég hleyp og hrasa um þína fætur.
Mér blæðir eftir fallið
en stend þó aftur upp
og finn að allt er breytt

Hvaða leið sem fer,
enda alltaf hér.
Inni í þínum garði,
hjá rauðum rósum festi blund
en vakna þér við hlið.
Byggjum skýjaborg,
hvítar hallir rísa.
Við flögrum upp úr garðinum
eins og flugdrekar.




Oceń to opracowanie
anonim